Lítið vit í litlum haus...

Lítið vit í litlum haus...

03.01.2007 13:28:35 / Lilla

Ahh..

jibb...

www.lillalange.bloggar.is

ég ákvað að svíkja lit... auðveldara að setja myndir inn hérna... en njótið....

» 0 hafa sagt sína skoðun

13.11.2006 00:53:23 / Lilla

újé beibeh..

Hey folks.. á maður að gefa þessu annað tækifæri hérna ? tjah.. veit ekki alveg sko.. en allavega.. þetta er orðið alveg heavy flókið hérna sko..

En allavega.. núna er maður að blogga úr stórsveitinni.. ekki lengur á Króknum eða Akureyri.. hvað er það nú eiginlega ?

en þetta verður nú eitthvað lélegt hjá mér núna... farin að leggjast þreyta á Lilluna..

En ef einhver vill samt koma heim til mín og mála herbergið og kannski veggfóðra smá.. fara svo á Krókinn og ná í smá dót fyrir mig og raða í skúffur.. kannski hengja upp gardínur og kannski klára að sauma smá.. síðan má setja upp hillurnar líka.. taka upp úr kössunum sem koma frá Króknum og setja dótið á réttan stað, þrífa svo gluggan að utanverðu, búið að vera svo leiðinlegt veður svo það þyrfti kannski aðeins að skola af þeim.. hengja svo upp nokkur plaköt og fínerí.. ramma inn nokkrar myndir sem mega síðan líka fara upp á vegg.. redda mér smá náttborði eða einhverju sambærilegu, tengja græjurnar og svona kannski smá meira.. en þá væri það að sjálfsögðu vel þegið.. gæti kannski vakað aðeins lengur... En annars þá er ég bara að spá í að skella mér í háttinn.. en þið bjallið bara...

ég gæti nú kannski fundið einhverjar golden sögur og skellt þeim á skjáinn..

En kannski seinna...

Já by the way.. ég og Sara erum að fara til Englands í janúar.. það verður geeeggjó !!

og hey já.. vissuð þið að ég er komin yfir barneignaaldur og að leka inná breytingarskeiðið.. komst að því um helgina..

En já bleess..

STAY TUNED !

.. ég er samt að fyllast áhyggjum með þetta hárlos mitt..kannski má ég það líka alveg..

 

 ..yuhummie !


» 4 hafa sagt sína skoðun

14.07.2006 13:24:35 / Lilla

back on track.. ?

Jæja.. maður hefur verið alveg helvíti slappur í þessu bloggi... en ég er allavega enn á lífi... var að koma af morgunvakt og svona skemmtilegheit...  en það er nú ýmislegt búið að ganga á síðan ég bloggaði síðast... alltaf eitthvað áhugavert að gerast í vinnunni... nýja mottóið mitt er.. ,,einn skandall á dag kemur lífinu í lag"... það á svo sannarlega við mig og þessa vinnu..sjæse.. þess má geta að í gær lagði ég á borð fyrir heilan hóp sem var með súpu í forrétt með skeið og forréttargöflum... það verður seint gleymt ásamt fleiru sem á sér stað þarna....

En jamms.. gaman að því... núna er spurning hvort maður ætti aðeins að reyna að vera duglegri með þetta blogg hérna.. spáum aðeins í því...

En jesss... helgi framundan.. stefnan sett á að hitta hann Kristján minn... annað hvort á Akureyri eða pleisinu (Króknum)... síðan er ég að fara að keppa á sunnudaginn með Stjörnunni.. á móti Þór ! fjúddafjú.. en það verður bara gaman...

En ég ætla að fara að gera eitthvað að viti..  eða já..

ble ble..

- Lilli klifurmús (er það ekki að virka ?)


» 9 hafa sagt sína skoðun

30.05.2006 00:46:58 / Lilla

useless information

Jæja.. ákvað bara að skella inn smá hérna... en þá er próftíðarandskotinn hafinn.. en ég er að læra hérna í efnafræði sem er aleg órúúlega gaman sko... *ííík* ræð mér ekki af kæti.. eða jájá..

en já.. þá eru það 9 dagar í sumarfrí... vá.. ég sé það sko í hyllingum... en það er búið að plana ýmislegt fyrir þetta sumar...

En já.. aðeins um kosningarnar... að sjálfsögðu tók framsókn þetta á Króknum... og Pálmi Sighvats í Frjálslynda komst EKKI inn... hvaða skandall er það ? hahaha... já sjitt... gott mál gott mál... En já allavega.. við fórum þarna á kosningavöku.. mjög gaman sko.. og að sjálfsögðu svaka stemning... en nenni ekki að skrifa meira .. ég ætla að vinda mér aftur í efnafræðina... sjæse...

koma svo KVITTA !!!

En allavega.. já bæ..

Lilla - efnafræðiskítur..

hey já.. síðan allar nýjustu myndirnar og einhverjar gamlar.. allt á leiðinni svona eftir próftíð.. :)


» 10 hafa sagt sína skoðun

26.05.2006 00:27:29 / Lilla

Gúllígú...

Jæja... þá er ég mætt aftur...

...það er nú ekkert rosalega mikið í fréttum verð ég að segja.. prófin bara að fara að byrja svo að maður hefur ekki mikið annað að gera en bara læra þessa dagana..

 

en já..*awwww*  ég og Kristján áttum samt 2 ára afmæli í dag og vonandi verða árin bara fleiri...en til hamingju með það ástin mín..  ;** en vá.. tvö ár... ekkert smá skrítið.. fljótt að líða... en já.. elska þig Kristján minn ;)

 

...en já... ég er einmitt að borða heitasta pasta í heimi núna og get varla talað..er komin með sár á tungun a.. ái... ég held ég klári nú bara mjólkina mína og fari að sofa.. legg ekki í þetta pasta og nenni ekki að bíða þangað til það kólnar... svo ég fer bara svöng að sofa í þetta skiptið...

En já.. ég held að ég fari bara að segja þetta gott eins og er... ég man ekkert semég ætlaði að skrifa... gleymdi meira að segja pastanu á hellunni svo það brann við.. sko sósan... fjúff... en ja hey.. ég gerði samt heitan rétt í gær fyrir skólann og tókst hann bara vel sko :) en ég á nú Söru ýmislegt að þakka ... hehe...

ÁI !!!!núna er ég hætt að borða þetta pasta !!!!!!! sjitt... þetta var vont... og já ojj !!!! fann lauk í þessu... þetta pasta er totally screwed.. mæli ekki með pakkapasta.. gerum þetta á gamla mátann.. setjum X við barilla...

En já.. kosningavaka á laugardaginn.. sjússs... ef ég verð í bænum er það planað að ég og Árni ætlum að kíkka á framsóknarvöku sko.. haha... hell yeah !

já ég bið að heilsa ykkur rassabollurnar mínar.. já eða eitthvað..hehe...

*kiss kiss*

Lilla - .. brennt og svekkt afmælisbarn...


» 0 hafa sagt sína skoðun

22.05.2006 11:26:08 / Lilla

the mighty artist...

gódaginn..

hundkvikindi.... þetta litla skrípi var einmitt nánast í þessum töluðu orðum að ráðast á öll fallegu listaverkin mín sem ég gerði þegar ég var lítil... ein mappan mín síðan í grunnskóla var fram í eldhúsi og kem ég ekki að kvikindinu vera að rífa það í öreindir og leika sér svo með bútana... ég meina... þetta er gasalegt tjón... það eru margir sem myndu drepa fyrir að komast í eitthvað svona sem Kjarval gerði á sínum yngri árum... þannig.. og þar sem myndlistarhæfileikar mínir eru svoleiðis upp úr öllu valdi... damn that dog...  (segir frk.getalvegeinshaldiðáblýantnummeðolnbogunum)... en já... svekkelsi.com...

en já.. gærdagurinn... efnafræði...efnafræði...efnafræði... pítsa með Árna Einari...rúntur... efnafræði...Sara..kjúklingur... Anna og Sandra líka... video....rúntur... spjall...

jamms... svona nokkurnvegin þetta.. held ég... feitur efnafræðingur...

Ég hef nú voðalega lítið að segja... var rétt í þessu að henda hvolpakvikindinu fram og loka... ég og Skotta inní herbergi.. pjúra einelti... ég var bara að hlífa greyið Skottu.. eða já líka Birtu... svona áður en Skotta myndi drepa hana....hehe... djöö.. hundurinn að væl heyrist mér... búin að opna fram á gang.. ég er ekkert svo köld eftir allt...

En já.. ég er að tala um eitthvað useless dót hérna.. og það hefur náttúrulega ALDREIIII gerst áður.. :$ :$ jú Lilla mín.. svona um það bil alltaf... allt sem ég segi sem sagt flokkast yfirleitt undir það.. en ég lifi samt ekki í einhverri blekkingu.. ég geri mér fullkomlega grein fyrir þessu.. sem er já... jafnvel enn sorglegara...

En vá já.. ég ætla að bara að hætta núna... var að borða Kelloggs special k.... you know.. to drop a jean size... að sjálfsögðu ég finn alveg hvernig undirlagið minnkar með hverjum bitanum... en það stendur á þessu 2 skálar á dag í 2 vikur.. já ef það er það eina sem maður borðar yfir daginn þá er svo sem skiljanlegt að þarna.. drop a jean size... æji þetta er meingallað... það eru pottþétt einhverjir sem borða 2 skálar á dag og síðan feita hamborgara og sveittar pítsur inná milli...og skilja svo ekkert í þessu.. já Lilla.. svona eru kannski auglýsingar..

 

Nóg af einhverju kjaftæði....

..sjáum ljósið..

Lag: Where have all the flowers gone  með PPM

 

Lilla - Jóhanna Guðrún Jóhannesdóttir Kjarval..


» 5 hafa sagt sína skoðun

20.05.2006 14:06:03 / Lilla

Engin miskunn.....

Jamms.. þá er mín komin heim í sveitina.. og já það er sko gott... heima er best.. án efa....

En já.. ég og Sara fórum út að borða í gær.. áttum rómantískan kvöldverð saman á Ólafshúsi... Sandra var einmitt að vinna og erum við alveg ótrúlega ánægðar með þessa fyrsta flokk þjónustu ;)

En við vorum samt á Pollanum í tvo og hálfan tíma... takk fyrir.. en vá hvað það var hlegið... vorum að rifja upp gamlar og fyndnar sögur... eða svona atvik.. og ég skal segja ykkur það að einhverjar af þeim verða deildar með ykkur kæra fólk.. haha.. vá.. það var ekkert lítið hlegið í gær... en þannig er nú það...

..Í framhaldi af rómantíska kvöldverðinum okkar tókum við rómantíska beygju... og Anna slóst í hópinn... og síðan Sandra.. en þetta var mjög gaman... líf í bænum en það verður ennþá meira líf í kvöld takk fyrir ! En við vorum einmitt með smá svona nostalgíukast... vorum með einhverja geisladiska síðan af Króksmóti í denn.. og vá.. gooooood times... kallaði fram ýmsar minningar... eins og spacequeen á pæjumóti og gull og silfur í denn ! vúhú... og hver man ekki eftir lemon tree í líf og leik hahaha....

en já.. er það eurovision í kvöld ?.. sjæse... þessi lög sem komust áfram.. superstar ? what ? En svona er það.. við eigum aldrei eftir að komast upp úr þessari undankeppni... (ein bitur)

En sjæse.. það fer að styttast í prófvikufjandann....en það er svo sem ágætt.. þá er sumarið aaalveg að koma... eg trúi því að þegar ég er búin í prófum byrjar hið fullkomna sumar.. heitt og gott veður... ekki snjókomuandskoti eins og núna ! *arg* (bitur aftur)

En já... biturleikinn er að leika mig grátt sýnist mér... hehe... en já  eins og ég hef minnst á áður þá er ég alveg á hundraðinu í myndunum.. er alveg ógeð dugleg að setja inn myndir.. eða svona... já... 

Á döfinni: Singstar að hætti Söru...

En já svona að lokum... vá hvað maður er orðinn gamall !!! sko... fokk that sko.... í gær var bara fuullt af einhverju litlum krökkum í bænum... maður gat varla látið sjá sig þarna sko... maður er bara bitur og gamall...

stay tuned folks !

 

Lag: Allt með Hallbirni Hjartarsyni... skylda með hækkandi aldri.. lovjú kántríboj....

hvernig væri að sýna miskunn..

 

Lilla - ...nálgast breytingaskeiðið óðfluga !

 

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

17.05.2006 13:59:15 / Lilla

aha..

Jæja... ég held að það sé komið að ákvörunarstund hjá mér... já fyrir svona 2 mánuðum.. en það gengur ekkert hjá mér.. En já... Litlu Ólympíuleikarnir voru í morgun hjá 4.U og kennurunum.. fínt að fylgjast með því... sérstaklega þar sem það var frí í skólanum á meðan... og mjög gott veður og svona... en já...

Stelpurnar eru í bænum.. og ég ætla að fara að fara úr skólnum til að slást í hópinn hjá þeim... það verður geggjað að hitta þær... maður er farinn að sakna allra þarna heima svo... en já.. HVAR Á ÉG AÐ VER Í SUMAR ? ég er að verða geðveik á þessu... og believe me þetta er svona erfitt að ákveða.. kostir og gallar alls staðar... og allt bara ... æji sjitt.. en já.. óákveðin er einmitt millinafn mitt...

en ég bið að heilsa í bili...

Anna... ég er að hlaða inn myndum fyrir þig á fullu sko..

og stelpur þarna heima.. á ekki að koma á Akureyri um helgina.. Allavega Vala. Jónsi þinn er að koma ;)

En jamms.. Eurovision á morgun... fjúff... Silvía Nótt að meika það.. hehe... En já... smá úr eftirparýinu eina hérna svo... ætli það verði eitthvað svoleiðis í sumar aftur ? :) hehe.. good times...

Vala fékk þetta gefins frá sæta trommaranum (var það ekki annars trommarinn ?) í Von... Vala var að meika það... Stefán Friðrik síðan eitthvað að tjá sig...


» 4 hafa sagt sína skoðun

11.05.2006 10:44:21 / Lilla

HJÁLP-HJÁLP-HJÁLP-HJÁLP-HJÁLP-HJÁLP-HJÁLP-HJÁLP !!!!

Jæja.. ætli ég skelli ekki inn einhverju smá... en samt varla að nenna því...

En það er fátt annað sem kemst að hjá mér þessa stundina en ákveða hvar ég á að vera í sumar..Akureyri, Sauðárkrókur, Reykjavík eða Danmörk.. HJÁLP !! Allt hefur sína kosti og galla... þetta er alveg ótrúúúlega erfitt sko.. ef ég gæti þá myndi ég ráða einhvern í vinnu til að ákveða þetta fyrir mig... en neibb það er að sjálfsögðu ekki hægt ! :^) 

En gleðiefni dagsins er það að hún Kristbjörg á afmæli í dag... til hamingju með það ;* en við vöktum hana einmitt klukkan 6:30 í morgun.. hún var sett í ruslapoka, síðan settur á hana trefill og sólgleraugu.. mjög sæt.. en síðan var farið með hana  einhverja krókaleið útí Lystigarð en þar var svo skálað með kampavíni.. athugið..klukkan 6:30... fyrsti tíminn hennar var svo jóga og segja sögur að hún hafi ekki alveg haft jafnvægið í lagi :) En hér kemur svo mynd af afmælisskvísunni

... en restin af myndunum sem teknar voru í morgun eru undir linknum Kristbjörg-afmæli hér til hliðar.. en hún tók það sérstaklega fram að þetta er ekki samfarahnakki á henni..hehe :)

En já annars... Anna mín Ragna það eru fullt af myndum á leiðinni inn... baaara handa þér svo þú hafir eitthvað að gera :) en já allavega.. ég ætla að klára að læra í íslensku... bið að heilsa ykkur í bili..

En munið samt að nú ber ykkur skylda að segja mér hvað ég á að gera í sumar !! :)

en minn einlægi maki.. Eva Dís.. hér fékkstu færslu :) takk fyrir síðast... maki...

-- ný skoðanakönnun-- (um hvað ætli hún sé ??)

Lilla - .. hjálparþurfi..


» 10 hafa sagt sína skoðun

15.04.2006 21:12:15 / Lilla

ehm jánei..

Jess... ég er búin að vera löt við þetta... :S En já.. ég er sem sagt í páskafríi... sem er ljúft !! Ég ætla alltaf að vera í páskafríi sko.. enginn vafi...

En já... það er ýmislegt búið að gerast í fríinu sko... er búin að vera fullt í Reykjavíkinni... eða fór þegar við fórum með skólanum á Gettu betur (sem MA rústaði by the way ! :) ) og þarna menningarferðina... Það var bara mjög gaman sko...

En já.. ég nenni ekki að vera að telja upp allt sem ég er búin að vera að gera í fríinu samt..

Ég er samt á Króknum núna.. og vá.. það er líka ljúft.. án alls efa þá er þetta besti staðurinn til að vera á... 

Í gær var ýmislegt brallað... fór á bretti.. sem var magnað :).. síðan um kvöldið var hittingur hjá Önnu Berglindi og svo ball... mjög gaman sko :)...

Í dag.. já.. vaknaði galvösk uppúr níu, fór í sturtu..hafði mig til og svona.. og fór svo uppí lyftu... það var fín færð en ööömurlegt skyggni.. svo þett var stuttur dagur í fjallinu...  En já.. annað að frétta af deginum.. ehm.. rafmagnsleysi... og já.. rafmagnsleysi... og já... RAFMAGNSLEYSI !!!... það var að koma aftur á nánast í þessum töluðu orðum sko... en það fór fyrst um hádegisbil og kom á klukkan rúmlega sex og fór svo aftur...  En já.. ég sat nú samt ekki allan tíman að klóra mér á milli tánna í rafmagnsleysinu... ég fór og hitti Sörulinginn.. og reyndi eitthvað að taka til... endurtek.. reyndi...

en jess... ég ætla að fara að reyna að ákveða mig hvað ég ætla að gera í kvöld og svona..

þar til næst pítsurnar mínar..

p.s.

búin að velja make-up kvöldsins...


» 3 hafa sagt sína skoðun

26.03.2006 11:33:58 / Lilla

Saga: Vala, eins og hungraður úlfur í sauðfé

Jæja... þá er komið að því... það er kannski ekki alveg hægt að segja að hún Vala okkar lifi á loftinu...

En þetta allt byrjaði þegar Vala fór að finna matarlykt... þá er allur varinn góður skal ég segja ykkur...

 en ég er búin að setja restina af myndunum inn á líka..

 - Vala, eins og hungraður úlfur í sauðfé -

Jæja.. Vala farin að finna matarlykt.. finnur löngunina koma yfir sig..

horfir löngunaraugum á matarborðið... Númaröddin inní henni byrjar að öskra *maaaaaatuuur*

Hún fikrar sig lúmskt nær..

vá !..þá er komið að því!.. ætli ég geti borðað þetta í einum bita ? *namminamm*

busted... stóðum hana að að verki þarna.. skamm Vala ! það þarf að hafa auga með henni..

..hamingjusama Vala sættir sig við að fá sér á disk til að byrja með...

..come to mama !

vúhú... þetta er strax orðið gaman !

reynir þó að byrja rólega... leikur sér að því að kitla bragðlaukana...

en það færist hiti í leikinn..ætli einhver sjái hvað ég er ógeðslega gráðug ?

æji fuck that !!

aaaahhhhhhhhhh... vá hvað þetta er gaman !!!  meira meira !

Vala drakk mikið með matnum.. eitthvað þurfti hún til að hjálpa við stóru bitana.. *maaaaaaatuuuuuur*

Jáá... elska mat !... *íííííííík*

Vá... satisfied.. Vala var róleg það sem eftir var kvöldsins... takmarkinu náð..

Vala fékk verðlun í lok kvöldsins... fyrir hvað ætli það hafi verið ?

 

Svona er sagan af Völu... ef þið sjáið þetta kvikindi nálgast, drífið ykkur að klára matinn... hún rennur á lyktina... það kannast líka allir við söguna rauðhettu og úlfinn... vala er úlfurinn...

Ég segi þetta nóg í bili krakkar mínir.. kvittiði nú :)

                

                                                                               Lilla - svöng ?


» 20 hafa sagt sína skoðun

23.03.2006 17:13:05 / Lilla

bitte ?

je beibe... þá er ég mætt aftur... Ratatoskur er búinn... en það eru sem sagt opnu dagarnir í skólanum fyrir þá sem ekki vita.. En já.. ég gerði ýmislegt sko.. fór á fyrirlestur um Sölden (eins og allur skólinn..hehe), fór svo á fyrirlesturinn hjá Stefáni - sex on the beach.. sem var já um útskriftarferðina.. og síðan fór ég boot camp niðrí átaki.. það var einmitt mjög gaman en ég neita því ekki að þetta var alveg drullu erfitt sko.. en samt mjög fjölbreytt og skemmtilegt... En já síðan seinni daginn þá fór ég á einhvern heimspekifyrirlestur hjá SÓ um fagurfræði.. það var alveg fínt sko.. En það var alveg fullt sem hægt var að gera og ég hefði viljað gera.. En þetta var það sem ég gerði þetta árið.. :)

En já... þess má geta að ég labba eins og mörgæs með vörubíl í rassgatinu... eða samt aðallega í gær... þar sem ég ákvað að skella mér í ræktina ofan á boot campið.. en maður er allur að koma til..

En já.. allvega það er ekki margt sem hægt er að segja svo sem... er bara á fullu í lærdómnum... *gubb* er ekki að nenna því samt..

En já.. þess má líka geta að Hjörtur sökkar í njálu (þú átt þetta skilið eftir íslenskutímann)... og ég er að rústa honum...

og já.. eitt af aðal umræðuefnunum dagsins voru sturtumyndir.. wonder why ?... en já krakkar mínir.. efni í penthouse gellur sko..

og síðan er það rúsínan í pulsuendanum... Anna nokkur Andrésdóttir er alltaf svo mikil dama að hún ákvað að finna eina hrikalega sæta mynd á netinu og senda mér í íslenskutíma áðan en þið getið sé hana hér www.biggernigger.com 

 

og ég held að ég láti þetta vera mín lokaorð í þessari færslu.. en njótið vel og lengi.. (eða ég fæ allavega að njóta hennar lengi þar sem Hjörtur FESTI þessa mynd á desktopinu hjá mér... revenge!!)

 

Góðar myndir af lokahófinu Lára... whaat ? haha..  þetta var ekki næs fíling sko.. brá feitast sko.. kreisí þessi já.. ehm .. spúna...böllur ? haha..

Lag: The View- Modest Mouse

                                                Lilla - killer

                              (I'm a poet and I didn't know it.. shit.. Lilla þegiðu)

 

en já bæ peeps..


» 9 hafa sagt sína skoðun

19.03.2006 13:19:16 / Lilla

Shake that ass with me...

jahá... núna er sko kominn tími á blogg sko.. en ég held bara að ég hafi aldrei skemmt mér svona vel eins og í gær... þetta var snilld !!

En já... það var sem sagt lokahóf í körfuboltanum hjá okkur.. hittumst útí Hamri klukkan tólf.. en þá var haldið af stað uppá skotsvæði.. þar voru skotnar leirdúfur.. og viti menn... skaut mín ekki eina.. þetta er bara í eðlinu.. já nei ekki alveg samt.. ég ætla ekki að spila mig svona harða þar sem það tók mig aldir að þora þessu sko.. hehe.. :| En já.. svona er það.. ég komst samt í úrslit... En það má segja að Ragnheiður og Helgi Freyr hafi borið sigur úr bítum... :)

En já.. næst var Amazing Shopper.. en Anna og Sigga skipuðu kvennaliðið en Herra Húnfjörð og Bjarki skipuðu karlaliðið.. en þau fengu lista með hinum og þessum vörum á og þau áttu að finna allt og sá sem var á undan vann.. og það má segja að þetta hafi verið glæstur sigur hjá dömunum... að sjálfsögðu !! :) stolt af ykkur pungarnir mínir..

En já.. næst var einhver þraut... 5 í liði... einn fyrirliði sem átti að vefja plastfilmu utan um okkur hinar... haha það gekk misvel.. látum úrslitin ósögð í bili..hehe :)

En já.. næst var haldið til Svalbarðseyri... En þar voru ýmsar þrautir í íþróttahúsinu... vorum með troðslukeppni... það var sem sagt kókosbollutroðsla... euww... En jamm.. síðan þriggja stiga keppni... þá átti annar að skjóta en hinn dambaði bjór á meðan.. og svo skotkeppni en það var keppni hver var fljótastur að taka 5 skot á mann... Húni og Sandra kepptu um það.. en það voru skiptar skoðanir á hver vann það.. en Sandra þú stóðst þig vel ! :)

en já ekki má gleyma Limbó-keppninni góðu... það ma segja að það hafi verið öruggur sigur hjá okkur þar á ferð.. en strákarnir stóðu sig mjög vel samt sem áður.. hehe.. :)

En síðan að sjálfsögðu körfuboltaleikurinn... hann endaði 12-14 fyrir strákunum... en það var mjög skemmtilegt.. haha.. en sum voru komin með skrautleg tilþrif þarna á vellinum.. hahaha..

En já.. síðan var haldið heim.. og mætt síðan aftur útí Hamar klukkan átta.. þá var matur, verðlaunaafhending, myndband, pistill, happdrætti og margt skemmtilegt... Siðan eftir það þá var bara spjallað og svona... Síðan haldið niður í bæ...

Byrjuðum á Amour og vorum þar mest allan timan... það var stuð... sumir sýndu meiri tilþrif en aðrir á dansgólfinu þó.. haha... En já... ég hef aldrei skemmt mér svona vel þarna...En síðan var líka kíkt útá oddvita.. og á Karó... þar voru Sara, Petra og fleiri í góðu glensi...

En já.. ég held að ég hafi bara sjaldan skemmt mér svona rosalega vel sko... þetta var alveg magnað.. :) takk fyrir kvöldið fólk.. hehe.. þetta er eitthvað sem er nauðsynlegt að endurtaka.. hehe... takk fyrir góðan dag !

Myndir koma svo inn bráðum.. og ég get sagt ykkur það að þær eru misskrautlegar...haha.. :)

 

Og já.. að sjálfsögðu... Amma átti afmæli í gær og varð hvorki meira né minna en 95 ára ! Til hamingju með það Amma mín... mig grunar þó að þú lesir ekki bloggið mitt.. en já.. love you ;)

 

En já það rámar kannski sumum í þetta... en syrpan er á leiðinni.. :) Já Vala...

En bæ í bili...

Lag: Angie - Rolling Stones .. án efa.. Hjördís ég sakna þín.. :(

 

              Lilla - pigen husker den alle sidste dans.... go Kimmi !


» 8 hafa sagt sína skoðun

17.03.2006 14:27:40 / Lilla

aaaaaaaa

sjæja... í fréttum er þetta helst..

Þorsteinn ætlar að giftast pennaveskinu sínu og hefur merkt það vel og vandlega U+ME 4EVER... gott að hann hefur fundið sálufélagann sinn..

Ég er stelpa og þar af leiðandi kúka ég ekki... ehm.. *roðn*

Ég hef skipt um nafn.. hér eftir geng ég undir nafninu Howard W. Florey.. og ég og félagar mínir Ernst B. Chain og Alexander Fleming... sem gengu áður undir nöfnunum Hjörtur og Þorsteinn ætlum að fara að hittast og rækta bakteríur og setjum svo penicillín á markað... sounds like a plan..

En já allavega... en þá er loksins efnafræðiprófið búið... whoopee !

En já..... síðan er helgarfrí... whoopee ! En helgin er samt óákveðin svona að mestu leyti..

En leiðinlegt blogg...

Góð Sandra !

Stay fucking tuned... jebbs... hörð.. allt að koma...

                                            

                                                          Howard W. Florey - blúbb..


» 3 hafa sagt sína skoðun

15.03.2006 17:21:43 / Lilla

what ever

jahá... það held ég nú sko... maður er hvorki meira né minna en staddur á Króknum... og já... það eru einmitt tveir búnir að segja við mig síðan ég kom að ég sé nú farin að tala heldur betur eins og Akureyringur.. ehm.. viljum við það eða ??

hehhh.. en alla malla.... það er leikur eftir ekki svo langan tíma.. mín er svakalega spennt... hehe... allir að muna að hvetja okkur Þórsarana áfram.. :) Sjitt.. þetta er í fyrsta skipti sem ég segi "Þórsarar" og er að tala um sjálfa mig.. það bara er ekki alveg að passa sko...

En já... ég er einmitt svakaleg húsmóðir í mér.. eins og auðvitað allir vita.. hehhh  :$ En pungurinn sjálfur tók með sér fulla tösku af þvotti... vá.. en leiðinlegar fréttir sem ég er að segja ykkur..

En já... ég held að ég fari bara að gera eitthvað gáfulegt...

bara búin að vera hérna í smá stund og strax farin að sakna skólans...

Hvernig er annað hægt?? mússí múss..

ehm... what ?? Já neinei...

                                                                                                     Lilla - í borginni...


» 6 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 8
Klukkan
Dagatal
mars - 2010
S M Þ M F F L
123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
28293031
FyrriNæsti
Leitarbox